Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2017

Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2017

//
Categories

Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2017 er lagður fram til fyrri umræðu í  sveitarstjórn miðvikudaginn 11. apríl 2018 og vísað til síðari umræðu og afgreiðslu í sveitarstjórn í samræmi við sveitarstjórnarlög.

Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess, það er A og B hluta sbr. 60 gr. sveitastjórnarlaga nr. 138/2011.

Í A hluta er starfsemi sem að hluta, eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar íbúðir, Fráveita, Vatnsveita Rangárþings ytra og Ásahrepps, Húsakynni b.s., Rangárljós og Suðurlandsvegur 1-3 hf.

Samkvæmt rekstrarreikningi 2017 námu rekstrartekjur A og B hluta 1.781,7 millj. kr. samanborið við 1.633,5 millj. kr. árið 2016. Hækkun milli ára er 9,7%.

Rekstrargjöld A og B hluta eru laun, annar rekstarkostnaður og afskriftir sem námu samtals 1.566,7 millj.kr., en voru 1.365,3 millj. kr. á árinu 2016. Hækkun frá fyrra ári nemur 14,8%.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B hluta árið 2017 námu 76,1 millj. kr. samanborið við 81,9 millj. kr. árið 2016. Rekstrarniðurstaða ársins er jákvæð um 141,5 millj. kr. fyrir A og B hluta samanborið við 187,1millj. kr. á árinu 2016.

Viðhengi

  • Rangárþing ytra ársreikningur 2017 fyrri umræða áritaður