Ársreikningur Snæfellsbæjar 2017

Ársreikningur Snæfellsbæjar 2017

//
Categories

Góð afkoma af rekstri Snæfellsbæjar árið 2017

Miðvikudaginn 11. apríl 2018 var ársreikningur Snæfellsbæjar 2017 afgreiddur í bæjarráð til fyrri umræðu í bæjarstjórn.  Eins og sveitarstjórnarlög kveða á um, skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn. Fyrri umræða um ársreikninginn var miðvikudaginn 11. apríl 2018 og síðari umræða verður fimmtudaginn 3. maí n.k.

Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum en í B-hluta eru fyrirtæki sem eru í eigu sveitarfélagsins og eru rekin sem fjárhagslega sjálfstæðar einingar, sem eru: Félagsheimilið Klifi, Félagsheimilið Röst, Veitustofnanir Snæfellsbæjar, Hafnarsjóður Snæfellsbæjar, Húsnæðisnefnd Snæfellsbæjar, Leiguíbúðir með hlutareign og Dvalarheimilið Jaðar.

Rekstur Snæfellsbæjar mjög góður
Rekstur Snæfellsbæjar gekk vel á árinu og var rekstrarniðurstaðan töluvert betri en áætlun gerði ráð fyrir, eða um 262,9 millj. króna fyrir samantekinn rekstrarreikning A- og B-hluta.

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu um 2.314,2 millj. króna samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi fyrir A- og B-hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um 2.108,4 millj. króna. Rekstrartekjur A- hluta námu um 1.876 millj. króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um 1.670 millj. króna.

Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A- og B-hluta var jákvæð um 262,9 millj. króna en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir neikvæðri afkomu upp á 31,4 millj. króna. Rekstrarafkoman varð því töluvert betri en áætlun gerði ráð fyrir, eða sem nemur 294,3 millj. króna.  Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð að fjárhæð 137,1 millj. króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir neikvæðri afkomu upp á 47,4 millj. króna. Afkoma A-hluta varð því betri sem nemur 184,5 millj. króna.  Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 3.311 millj. króna skv. efnahagsreikningi en þar af nam eigið fé A-hluta 2.550 millj. króna.

Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins námu um 1.153,4 milljónum króna en starfsmannafjöldi sveitarfélagsins nam 136 stöðugildum í árslok.

Veltufé frá rekstri var 237 millj. króna og veltufjárhlutfall er 0,93.  Handbært frá rekstri var 245 millj. króna.

Heildareignir bæjarsjóðs námu um 3.870 millj. króna og heildareignir sveitarfélagsins í samanteknum ársreikningi um 5.072 millj. króna í árslok 2017. Heildarskuldir bæjarsjóðs námu um 1.320 millj. króna og í samanteknum ársreikningi um 1.761 millj. króna, og hækkuðu þar með milli ára um 112 milljónir. 

Eigið fé bæjarsjóðs nam um 2.549,8 millj. króna og eigið fé í samanteknum reikningsskilum nam um 3.311 millj. króna í árslok 2017.  Eiginfjárhlutfall er 65,89 % á á árinu 2017 en var 65,92% árið áður.

Snæfellsbær fjárfesti á árinu fyrir 535 milljónir í varanlegum rekstrarfjármunum og tók ný lán á árinu 2017 upp á 220 milljónir.  Greidd voru niður lán að fjárhæð 143,9 milljónir.
Hlutfall reglulegra tekna af heildarskuldum og skuldbindingum er 62,95% hjá sjóðum A-hluta, en var 61,64% árið 2016, og 69,49% í samanteknum ársreikningi en var 64,48% árið 2017.  Skv. 64. gr. 2. málsgr. sveitarstjórnarlaga á þetta hlutfall ekki að vera hærra en 150%.  Fjárhagsstaða Snæfellsbæjar verður því að teljast afar góð.
Álagningarhlutfall útsvars var 14,52%. Álagningahlutfall fasteignaskatts nam 0,44% á íbúðarhúsnæði og álagningarhlutfall á aðrar fasteignir nam 1,55%.
Nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri, Kristinn Jónasson, í síma 433-6900, eða á [email protected]
Hægt verður að nálgast ásreikninginn á bæjarskrifstofunni Klettsbúð 4, Hellissandi, sími 433-6900. Einnig á heimasíðu Snæfellsbæjar, www.snb.is. 

Viðhengi

  • Kauphöll Snæfellsbær ár 2017
  • Snæfellsbær – undirrituð samstæða 2017