Eik fasteignafélag hf.: Árshlutauppgjör fyrstu sex mánuði ársins 2016

Eik fasteignafélag hf.: Árshlutauppgjör fyrstu sex mánuði ársins 2016

//
Categories

–           Rekstrartekjur tímabilsins námu  3.160 m.kr.

–           Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 2.125 m.kr.

–           Heildarhagnaður tímabilsins nam 1.428 m.kr.

–           Handbært fé frá rekstri nam 1.311 m.kr. á tímabilinu.

–           Bókfært virði fjárfestingareigna nam 69.403 m.kr. og bókfært virði eigin eigna nam 3.744 m.kr. í lok tímabilsins.

–           Matsbreyting  fjárfestingareigna nam 1.066 m.kr. á tímabilinu.

–           Vaxtaberandi skuldir námu 45.897 m.kr. í lok tímabilsins.

–           Eiginfjárhlutfall nam 31,9%.

–           Hagnaður á hlut var 0,41 kr.

Árshlutareikningur Eikar fasteignafélags hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2016 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins þann 30. ágúst 2016. Árshlutareikningurinn var kannaður af endurskoðanda félagsins.

Meðfylgjandi er árshlutaskýrsla sem inniheldur árshlutareikning fyrstu sex mánuði ársins ásamt ítarlegri upplýsingum um rekstur félagsins en fram koma í tilkynningunni

Rekstur félagsins

Rekstur félagsins var traustur og stöðugur fyrstu sex mánuði ársins. Rekstrartekjur félagsins á fyrstu sex mánuðum ársins 2016 námu 3.160 m.kr aukast um 9,6% á milli ára. Þar af voru leigutekjur 2.772 m.kr. og tekjur vegna hótelrekstrar 198 m.kr. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 2.125 m.kr. Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 1.787 m.kr. og heildarhagnaður tímabilsins nam 1.428 m.kr.

NOI hlutfall (þ.e. rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu, afskriftir og einskiptisliði sem hlutfall af leigutekjum) nam 74,9% á fyrstu sex mánuðum ársins 2016 samanborið við 75,7% fyrstu sex mánuði ársins 2015.

Fjárfestingareignir félagsins eru metnar á gangvirði í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) og stuðst er m.a. við núvirt framtíðarsjóðstreymi einstakra eigna. Breytingar á gangvirði eru færðar undir matsbreytingu fjárfestingareigna sem nam á tímabilinu 1.066 m.kr. Á tímabilinu hækkuðu langtíma verðtryggðir vextir sem leiddu til hækkunar á vegnum meðalkostnaði fjármagns (WACC) úr 6,35% í 6,43% við útreikning á virði fasteigna félagsins miðað við armslengdar viðskipti.

Efnahagur félagsins

Heildareignir félagsins námu 75.598 m.kr. þann 30. júní 2016, þar af námu fjárfestingareignir 69.403 m.kr. og eignir til eigin nota 3.744 m.kr. Pósthússtræti 2 (Hótel 1919) er fært sem eigin eign þar sem í fasteignunum er annar rekstur en útleiga fasteigna og er reksturinn í eigu eins dótturfélags Eikar.  Eigið fé félagsins nam 24.150 m.kr. í lok júní 2016 og var eiginfjárhlutfall 31,9%. Heildarskuldir félagsins námu 51.449 m.kr. þann 30. júní 2016, þar af voru vaxtaberandi skuldir 45.897 m.kr. og tekjuskattsskuldbinding 4.634 m.kr. 

Virðisútleiguhlutfall

Mikil eftirspurn hefur verið eftir atvinnuhúsnæði Eikar frá áramótum. Í lok júní 2016 var virðisútleiguhlutfall félagsins 94,9% og hafði þá hækkað um 1,1% frá áramótum. Ef horft var til eigna í þróun var virðisútleiguhlutfallið komið í 96,2%.

Breytingar á eignasafni félagsins frá áramótum

Félagið tók við rekstri Heimshótela/Hótel 1919 þann 18. apríl ásamt því að kaupa Síðumúla 1 í sama mánuði. Þá seldi félagið eignarhlut sinn í Mörkinni 1 og hluta af eign sinni í Bæjarlind 14-16.

Nýr skuldabréfaflokkur EIK 100346

Í apríl 2016 lauk sölu á nýjum skuldabréfaflokki Eikar fasteignafélags, EIK 100346. Skuldabréfaflokkurinn er 2 ma.kr. að stærð, ber 3,6% fasta verðtryggða vexti og er til 30 ára.

Á hverjum tíma leitast Eik við að lágmarka fjármagnskjör sín og hefur félagið m.a. hug á endurfjármögnun lána vegna kaupa á Heimshótelum ehf. Endurfjármögnun gæti farið fram með bankafjármögnun eða skuldabréfaútgáfu, eða blöndu þar af, allt eftir því hvernig kjör bjóðast hverju sinni.

Eignasafn félagsins

Eik fasteignafélag hf. sinnir rekstri og útleigu á atvinnuhúsnæði. Fjöldi eigna félagsins er yfir 100 og telja þær samtals yfir 282 þúsund útleigufermetra. Virði fasteigna félagsins er u.þ.b. 73 ma.kr. og heildarfjöldi leigutaka er yfir 400. Helstu eignir félagsins eru Borgartún 21 og 26, Pósthússtræti 2, Nýi Glæsibær, Turninn í Kópavogi, Smáratorg, Glerártorg og Austurstræti 5,6,7 og 17. Stærstu leigutakar eru Fasteignir ríkissjóðs, Húsasmiðjan, Vodafone, Landsbankinn, Rúmfatalagerinn, Skipti, Deloitte og VÍS.

Stærsti hluti fasteignasafns Eikar eru skrifstofuhúsnæði eða 47%. Næst koma verslunarhúsnæði 28%, lagerhúsnæði 8%, hótel 8% og veitingahúsnæði 4%. Um 90% fasteigna félagsins eru á höfuðborgarsvæðinu, þar af 39% á fjármála- og viðskiptasvæði Reykjavíkur (aðallega innan póstnúmera 105 og 108) og 18% í miðbæ Reykjavíkur. Alls er 10% eignasafnsins á landsbyggðinni, þar af 9% á Akureyri.

Kynningarfundur

Opinn kynningarfundur verður haldinn miðvikudaginn 31. ágúst 2016 klukkan 08:30 á Hótel 1919 í fundarherberginu Goðafoss, Pósthússtræti 2, Reykjavík. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar, mun kynna afkomuna ásamt því að fara yfir helstu framkvæmdir félagsins.  Í kjölfarið mun hann ásamt Lýð H. Gunnarssyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs, svara spurningum.

Fjárhagsdagatal 2016

  • Afkoma 3F 2016                                           8. nóvember 2016
  • Afkoma 4F og ársuppgjör 2016                    28. febrúar 2017

Nánari upplýsingar veitir:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, [email protected], s. 590-2200 / 861-3027
Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, [email protected], s. 590-2209 / 820-8980