Lánasjóður sveitarfélaga – Ársreikningur 2018
Mestu útlán og lægstu vextir í sögu Lánasjóðs sveitarfélaga
Hagnaður Lánasjóðs sveitarfélaga nam 857 milljónum króna á árinu 2018 samanborið við 777 milljónir króna á árinu 2017. Breytingin á milli ára skýrist einna helst af miklum útlánavexti og aukinni verðbólgu.
Heildareignir sjóðsins í lok ársins voru 105,4 milljarðar króna en voru 85,7 milljarðar í árslok 2017 sem er aukning um 23%. Heildarútlán sjóðsins námu 99,1 milljarði króna í lok ársins samanborið við 73,6 milljarða í árslok 2017. Útlánaaukning á milli ára er því 25,5 milljarðar eða 35% en aukninguna má bæði rekja til almennrar aukinnar eftirspurnar eftir útlánum sem og uppgjöri sveitarfélaga á lífeyrisskuldbindingum við lífeyrissjóðinn Brú.
Eigið fé nam 17,9 milljörðum króna en var 17,5 milljarðar í árslok 2017. Vegið eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er 77% en var 97% í árslok 2017.
Traustur efnahagur, lágur vaxtamunur og lækkandi ávöxunarkrafa á verðtryggð skuldabréf hefur skilað því að sveitarfélögum bjóðast nú lægstu útlánavextir hjá Lánasjóðnum í 52 ára sögu hans.
Stjórn sjóðsins leggur til að á árinu 2019 verði arður að fjárhæð 428 milljónir króna greiddur til hluthafa í samræmi við arðgreiðslustefnu sjóðsins.
Helstu niðurstöður ársreikninga sjóðsins undanfarin ár í milljónum króna:
Rekstur ársins | 2018 | 2017 | 2016 |
Hreinar vaxtatekjur………………………………….. | 1.013 | 927 | 959 |
Aðrar rekstrartekjur (gjöld)…………………………. | 41 | 32 | (42) |
Almennur rekstrarkostnaður………………………. | 196 | 185 | 204 |
Afkoma fyrir óreglulega liði……………………. | 857 | 774 | 713 |
Óreglulegir liðir……………………………………….. | 0 | 3 | 270 |
Hagnaður ársins…………………………………… | 857 | 777 | 983 |
Framtíðarhorfur
Lánasjóður sveitarfélaga sér fram á að eftirspurn eftir útlánum verði nokkuð kröftug á næstu misserum í ljósi uppbyggingar á innviðum og öðrum framkvæmdum í mörgum sveitarfélögum landsins. Lánakjör hafa aldrei verið hagstæðari í sögu Lánasjóðsins enda er hlutverk hans að útvega lánsfjármagn á sem hagstæðustu kjörum til sveitarfélaga landsins.
Lánasjóðurinn mun starfa í grundvallaratriðum svipað og undanfarin ár þar sem unnið hefur verið að eflingu á starfsemi hans og aukinni þjónustu við sveitarfélögin með því að nýta gott lánstraust sjóðsins til að uppfylla meginhlutverk hans.
Kynningarfundur
Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila verður haldinn miðvikudaginn 6. mars 2019 í starfsstöð sjóðsins, Borgartúni 30, 5 hæð. Óttar Guðjónsson framkvæmdastjóri mun kynna afkomu og efnahag sjóðsins ásamt því að svara spurningum. Kynningin hefst kl. 12:00 og verður léttur hádegisverður í boði.
Nánari upplýsingar veitir: Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, s. 515 4949.
Viðhengi
- Lánasjóður sveitarfélaga – afkomutilkynning vegna ársins 2018
- Ársreikningur 2018 Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.