Sex mánaða uppgjör Landsvirkjunar 2016

Sex mánaða uppgjör Landsvirkjunar 2016

//
Categories

Helstu atriði árshlutareiknings

  • Rekstrartekjur námu 206,9 milljónum USD (25,2 ma.kr.) og lækka um 8,8 milljónir USD (4,1%) frá sama tímabili árið áður .1

 

  • EBITDA nam 155,2 milljónum USD (18,9 ma.kr.). EBITDA hlutfall er 75,0% af tekjum, en var 78,5% á sama tímabili í fyrra.

 

  • Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 64,5 milljónum USD (7,9 ma.kr.), en var 80,0 milljónir USD á sama tímabili árið áður og lækkar því um 19,4% milli tímabila. Lækkun álverðs og gengisáhrif skýra lækkun milli tímabila.

 

  • Hagnaður tímabilsins var 34,8 milljónir USD (4,2 ma.kr.) en var 63,9 milljónir USD á sama tímabili árið áður. Tekjulækkun skýrir hér hluta lækkunar milli tímabila en stærstan þátt á breyting á óinnleystum fjármagnsliðum. 

 

  • Nettó skuldir lækkuðu um 39,4 milljónir USD (4,8 ma.kr.) frá áramótum og voru í lok júní 1.946,0 milljónir USD (237,4 ma.kr.).

 

  • Handbært fé frá rekstri nam 123,8 milljónum USD (15,1 ma.kr.) sem er 15,4% lækkun frá sama tímabili árið áður.

 

Hörður Arnarson, forstjóri:

„Afkoma fyrirtækisins á fyrri hluta ársins var góð, ekki síst miðað við krefjandi ytra umhverfi. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 7,9 milljörðum króna, en árshlutinn var sá fjórði besti frá upphafi. Hreinar skuldir halda áfram að lækka, á sama tíma og bygging nýrra virkjana stendur yfir, sem er til vitnis um traustan grunnrekstur og sjóðsmyndun.

Tekjur lækkuðu í samanburði við sama tímabil árið áður, aðallega vegna lækkandi álverðs. Verð á álmörkuðum mun áfram hafa áhrif á afkomu Landsvirkjunar, en við endursamninga og gerð nýrra samninga höfum við lagt áherslu á að draga úr vægi þeirrar tengingar. Landsvirkjun komst í fjárfestingaflokk hjá lánshæfismatsfyrirtækinu Standard and Poor‘s í byrjun árs. Það stuðlar að áframhaldandi lágum vaxtakostnaði, sem er mikilvægur þáttur í rekstri fyrirtækisins til framtíðar og gefur fyrirtækinu aukna möguleika á fjármögnun  án ríkisábyrgðar.

Við verðum áfram vör við sterka eftirspurn eftir íslenskri endurnýjanlegri orku frá fjölbreyttum iðnaði. Til að auka orkuvinnslu standa nú yfir framkvæmdir við byggingu jarðvarmavirkjunar á Þeistareykjum og stækkun vatnsaflsvirkjunar við Búrfell.“

[1] Til viðmiðunar eru sýndar íslenskar krónur, notast var við gengi USD/ISK 122