Spölur – Árshlutauppgjör 1. janúar 2016 til 30. júní 2016

Spölur – Árshlutauppgjör 1. janúar 2016 til 30. júní 2016

//
Categories

  • Hagnaður Spalar ehf eftir skatta fyrir tímabilið 1. janúar 2016 til 30. júní 2016 nam kr. 241,8 m.kr. en hagnaður á tímabilinu 1. janúar 2015 til 30. júní 2015 nam 168,6 m.kr. Hagnaður Spalar ehf eftir skatta á öðrum ársfjórðungi félagsins sem er 1. apríl 2016 til 30. júní 2016 nam 171,4 m.kr. Á sama tíma árið á undan nam hagnaður félagsins 114,2 m.kr.
     
  • Greiðsluflæðið gefur hins vegar betri mynd af gangi félagsins þar sem verðbætur vegna vísitöluhækkana lána dreifast til greiðslu fram til loka lánstímans, þ.e. 2018. Greiðslugeta félagsins undanfarin 5 ár hefur verið sterk. Um 700 mkr. (2014:643 mkr.) voru greiddar í afborganir og vexti á tímabilinu 1. janúar 2015 til 31. desember 2015 og nauðsynlegt umframfjármagn var að auki til staðar 31. desember 2015 eins og lánasamningar gera ráð fyrir.
     
  • Veggjald nam 625,3 m.kr. fyrstu 6 mánuði ársins til samanburðar við 533,2 m.kr. árið áður sem er 17,3% hækkun.
     
  • Rekstrarkostnaður Spalar ehf án afskrifta fyrstu 6 mánuði ársins nam 218 m.kr. og hækkar um rúmar 27 m.kr frá árinu áður þegar hann nam 191 m.kr. Helstu breytingar eru vegna aukins viðhalds- og launakostnaðar.
     
  • Afskriftir á tímabilinu námu 60 m.kr., og voru á sama tímabili árið áður 61 m. kr.
     
  • Vaxtagjöld og verðbætur lækka á milli tímabila um 23 m. kr.
     
  • Skuldir Spalar ehf hækka úr 2.646 m.kr. þann 31. desember 2015 í 2.796 m.kr. þann 30. júní 2016.
     
  • Spölur ehf er að fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf.

 

 

Um uppgjörið

Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, segir að umferð og tekjur séu meiri en áætlanir fyrir fyrstu 6 mánuði rekstrarársins gerðu ráð fyrir. Gert er ráð fyrir að árið í heild verði nokkuð umfram áætlanir.

 

Nánari upplýsingar veitir Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar ehf, í síma 433 5910.