Vátryggingafélag Íslands hf. – árshlutauppgjör

Vátryggingafélag Íslands hf. – árshlutauppgjör

//
Categories

Árshlutareikningur fyrri árshelmings 2016

Samstæðuárshlutareikningur félagsins fyrir fyrri helming ársins 2016 var staðfestur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 25. ágúst 2016.  Reikningurinn hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins.

Helstu niðurstöður

  • Hagnaður af rekstri nam 238 m.kr. samanborið við 1.419 m.kr. hagnað fyrir sama tímabil 2015.
  • Samsett hlutfall var 104,8% en var 104,5% á sama tíma í fyrra.
  • Tekjur af fjárfestingastarfsemi námu  636 m.kr. samanborið við 2.065 m.kr. 2015.

Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri

„Afkoma tímabilsins var undir væntingum bæði hvað varðar vátryggingastarfsemi og fjárfestingastarfsemi.  Afkoma af vátryggingastarfsemi litast enn af því að tap er af bæði frjálsum og lögboðnum ökutækjatryggingum. Vöxtur iðgjalda var þó ágætur á fyrri helmingi ársins og hækkuðu innlend bókfærð iðgjöld um 11,6% frá sama tímabili í fyrra.  Meðaliðgjöld hafa hækkað en einnig er um að ræða aukningu viðskipta hjá núverandi og nýjum viðskiptavinum. Þá hefur félagið gert samninga um að þjónusta kortatryggingar allra stóru viðskiptabankanna næstu 1-3 árin og nema ný iðgjöld vegna þeirra um 660 m.kr. á ári frá miðju ári 2016.

Ávöxtun fjáreigna  nam 1,9% á fyrri helmingi ársins en 2,7% ef einungis er litið til innlendra fjárfestinga.  Styrking krónunnar hafði neikvæð áhrif á afkomu af erlendum eignum félagsins en félagið seldi nær öll skráð erelnd verðbréf á fyrsta ársfjórðungi.“ 

Arðgreiðsla og eigin kaup

Aðalfundur félagsins sem haldinn var þann 16. mars s.l. samþykkti arðgreiðslu að fjárhæð 2.067 m.kr. sem greidd var til hluthafa þann 15. apríl s.l.  Félagið keypti eigin hluti fyrir 396 milljónir króna á fyrri hluta ársins og átti alls um 2,2% af heildareiginfé í lok júní.

Gjaldþolshlutfall í lok júní var 1,83.

Víkjandi skuldabréf – skráning á Aðalmarkað NASDAQ Iceland

Í lok febrúar gaf félagið út víkjandi skuldabréf að nafnverði 2.500 m.kr. en útgáfa skuldabréfanna er liður í endurskipulagningu á fjármagnsskipan félagsins og tilheyrir hún eiginfjárþætti 2.  Skuldabréfin voru tekin til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ Iceland hf. þann 29. júlí s.l.

Horfur

Gert er ráð fyrir að áfram verði ágætur vöxtur í innlendum iðgjöldum á árinu og gera áætlanir ráð fyrir að samsett hlutfall á árinu 2016 verði lægra en það var á árinu 2015.

Kynningarfundur

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn hjá VÍS í Ármúla 3, 5. hæð, þann 26. ágúst n.k. kl. 8:30. Þar kynnir Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri VÍS afkomu félagsins og svarar spurningum. Kynningarefni fundarins verður aðgengilegt að honum loknum á heimasíðu VÍS: www.vis.is

 

Fjárhagsdagatal

Viðburður                                Dagsetning:

Annar ársfjórðungur             25. ágúst 2016

Þriðji ársfjórðungur           26. október 2016

Ársuppgjör 2016               23. febrúar 2017

Aðalfundur 2017                   16. mars 2017

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri í síma 560-5000 og í netfangi [email protected].