Árshlutareikningur RARIK fyrstu sex mánuði ársins 2016

Árshlutareikningur RARIK fyrstu sex mánuði ársins 2016

//
Categories

Rekstarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á fyrri hluta ársins 2016 var 1.642 milljónir króna. Rekstrartekjur hækkuðu um rúm 11,5% frá fyrra ári, en rekstrargjöld með afskriftum um 7,2%. Hækkun rekstrartekna er meiri en gert var ráð fyrir í áætlunum, en rekstrargjöld voru í samræmi við áætlanir.

Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 446 milljónir króna á tímabilinu, samanborið við 548 milljónir króna fyrri hluta ársins 2015. Er það mun betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í áætlunum. Stafar það bæði af minni verðbólgu en búist var við og einnig af styrkingu krónunnar.

Áhrif hlutdeildarfélagsins Landsnets á rekstur voru neikvæð um 75 milljónir króna, samanborið við jákvæð áhrif um 354 milljónir króna á fyrri hluta síðasta árs.

Samkvæmt rekstrarreikningi var hagnaður á tímabilinu 882 milljónir króna. Aðrar tekjur og gjöld færð á eigið fé voru neikvæð um 493 milljónir króna og stafa af þýðingarmun hlutdeildarfélags en hlutdeildarfélagið Landsnet hefur tekið upp bandarískan dollar sem starfrækslugjaldmiðil. Heildarafkoma tímabilsins var því 388 milljónir króna.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 2.500 milljón króna eða tæp 34% af veltu tímabilsins, samanborið við rúm 31% af veltu á sama tímabili árið áður.  Hreint veltufé frá rekstri var 2.389 milljónir króna samanborið við 1.830 milljónir króna á sama tímabili árið 2015.

Heildareignir RARIK samkvæmt efnahagsreikningi 30. júní 2016 voru 60.946 milljónir króna og heildarskuldir námu 25.285 milljónum króna. Eigið fé var 35.661 milljónir króna og eiginfjárhlutfall 58,5%.

Horfur í rekstri RARIK á árinu 2016 eru góðar. Gert er ráð fyrir að afkoma fyrir fjármagnsliði á seinni hluta ársins verði í samræmi við áætlanir. Miðað við gengisþróun undanfarna mánuði og verðbólguspár næstu mánaða verður heildarafkoma fyrirtækisins því jákvæð á árinu 2016.

Árshlutareikningur RARIK ohf er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.

Helstu stærðir samstæðureiknings eru sýndar í meðfylgjandi viðhengi.

 

Helstu stærðir samstæðureiknings RARIK, allar fjárhæðir í milljónum króna:

 

  jan-jún jan-jún jan-jún jan-jún jan-jún jan-jún jan-jún
Helstu stærðir árshlutareiknings úr rekstri: 2016 2015 2014 2013 2012 2011 2010
               
Rekstartekjur 7.399 6.633 6.428 5.783 5.568 4.979 4.669
Rekstrargjöld 5.757 5.370 4.770 4.576 4.193 4.074 3.885
Rekstrarhagnaður 1.642 1.263 1.658 1.207 1.375 905 785
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) -446 -548 -424 -425 -699 -981 248
Áhrif hlutdeildarfélags -75 354 277 335 53 -30 233
Hagnaður/tap  fyrir skatta 1.121 1.070 1.512 1.117 729 -106 1.266
Tekjuskattur -239 -143 -247 -156 -163 15 -186
Hagnaður (Tap) 882 927 1.265 961 566 -91 1.080
               
Eignir samtals 60.946 48.838 46.964 45.846 37.163 36.604 35.736
Eigið fé 35.661 30.112 28.098 26.158 19.894 18.223 17.062
Skuldir 25.285 18.727 18.866 19.688 17.269 18.381 18.674
               
Handbært fé frá rekstri 1.744 1.362 1.341 1.214 1.344 617 275
Greidd vaxtagjöld 315 352 357 361 350 337 564
               
EBITDA 2.500 2.071 2.455 2.006 1.995 1.532 1.356
Vaxtaþekja 7,94 5,88 6,88 5,56 5,70 4,55 2,40
Eiginfjárhlutfall 58,5% 61,7% 59,8% 57,1% 53,5% 49,8% 47,7%
               
               
               
Hækkun rekstrartekna 11,55% 3,19% 11,15% 3,86% 11,82% 6,65% 12,48%
Hækkun rekstrargjalda 7,21% 12,58% 4,24% 9,13% 2,91% 4,89% 10,54%
EBITDA/rekstrartekjur 33,79% 31,22% 38,19% 34,69% 35,83% 30,76% 29,03%

 

 

 

Árshlutareikningur RARIK 1. janúar til 30. júní 2016 var samþykktur á fundi stjórnar þann 26. ágúst 2016.

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK í síma 528-9000