Eimskip birtir ársreikning 2016 og uppgjör fjórða ársfjórðungs

Eimskip birtir ársreikning 2016 og uppgjör fjórða ársfjórðungs

//
Categories

Eimskipafélag Íslands hf. birtir ársreikning fyrir árið 2016 og uppgjör fjórða ársfjórðungs eftir lokun markaða fimmtudaginn 23. febrúar 2017.

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Gylfi Sigfússon forstjóri og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs, munu kynna uppgjör félagsins fyrir árið 2016 og uppgjör fjórða ársfjórðungs.           

Fundurinn verður haldinn föstudaginn 24. febrúar 2017 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst kl. 8:30. Boðið verður uppá morgunverð frá kl. 8:15.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast eftir fundinn á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.

Fjárfestafundurinn verður sendur út í beinni útsendingu á Facebook síðu Eimskips: www.facebook.com/Eimskip/. Fundurinn fer fram á íslensku og hefst útsending kl. 8:30.