Eimskip birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2016

Eimskip birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2016

//
Categories

Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2016 eftir lokun markaða fimmtudaginn 25. ágúst 2016.

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Gylfi Sigfússon forstjóri og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs, munu kynna uppgjör annars ársfjórðungs og fyrstu sex mánaða ársins 2016.       

Fundurinn verður haldinn föstudaginn 26. ágúst 2016 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst kl. 8:30. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:15.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast eftir fundinn á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.