Rekstur Landsbréfa hf. skilaði 702 milljóna kr. hagnaði á árinu 2016

Rekstur Landsbréfa hf. skilaði 702 milljóna kr. hagnaði á árinu 2016

//
Categories

Landsbréf hf. hafa birt ársreikning vegna reksturs ársins 2016.  Helstu niðurstöður voru þessar:

  • Hagnaður af rekstri Landsbréfa nam 702 milljónum króna á árinu 2016, samanborið við 616 milljóna króna hagnað fyrir rekstrarárið 2015.
     
  • Hreinar rekstrartekjur námu 1.730 milljónum króna á árinu 2016 samanborið við 1.569 milljónir króna rekstrarárið 2015. 
     
  • Eigið fé Landsbréfa í árslok 2016 nam um 3.150 milljónum króna samanborið við 2.448 milljónir króna í lok 2015.

    Eiginfjárhlutfall sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki var 112,58% samanborið við 86,46% árið áður, en hlutfall þetta má lægst vera 8%.
     

  • Í lok tímabilsins stýrðu Landsbréf eignum fyrir 31 sjóði og félög og eru hlutdeildarskírteinishafar í sjóðum félagsins um 13 þúsund talsins.
     
  • Starfsmenn voru 17  í árslok og var starfsmannafjöldi óbreyttur milli ára. 
     
  • Eignir í stýringu voru um 184 milljarðar króna í árslok samanborið við um 129 milljarða króna árið áður.
     

Rekstur Landsbréfa gekk mjög vel á árinu 2016. Umsýsluþóknanir félagsins jukust um 32% á milli ára og skilaði félagið góðum hagnaði eða 702 milljónum króna, sem svarar til rúmlega 28,7% arðsemi eigin fjár. Innlendur verðbréfamarkaður, einkum hlutabréfamarkaður, skilaði lakari ávöxtun en árið á undan, en þrátt fyrir það voru verðbréfa- og fjárfestingasjóðir Landsbréfa almennt að vaxa á árinu.  Á árinu voru stofnaðir fjórir nýjir sjóðir. Af nýjum afurðum á árinu má nefna annars vegar fagfjárfestasjóðinn Landsbréf – Veðskuldabréfasjóð slhf., sem fjárfestir í fasteignatryggðum skuldaskjölum, og hins vegar fjárfestingarsjóðinn Landsbréf – Global Portfolio sem fjárfestir á erlendum verðbréfamörkuðum.   

 

Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa: 

 

„Rekstur Landsbréfa gekk vel á árinu og hefur félagið fest sig í sessi sem eitt öflugasta sjóðstýringarfyrirtæki landsins. Á árinu varð verulegur vöxtur á eignum í stýringu Landsbréfa og almennt gekk rekstur sjóða vel.  Félagið leggur metnað í að hlusta eftir þörfum fjárfesta og endurspeglast það í fjölbreyttu sjóðaframboði félagsins, þar sem er að finna fjárfestingakosti sem mæta þörfum flestra fjárfesta.“

 

Nánari upplýsingar um ársreikning Landsbréfa veitir Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa, í síma 410 2500.