Reykjavíkurborg – Árshlutareikningur janúar – september 2017

Reykjavíkurborg – Árshlutareikningur janúar – september 2017

//
Categories

Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar – september 2017 var afgreiddur í borgarráði í dag, fimmtudaginn 30. nóvember.

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A- og B-hluta, var jákvæð um 20.646 mkr en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 12.673 mkr.

Rekstrarniðurstaðan er því 7.973 mkr betri en gert var ráð fyrir.  Helstu ástæður fyrir betri afkomu má rekja til hærri tekjufærðra matsbreytinga fjárfestingaeigna Félagsbústaða hf. og lægri fjármagnsgjalda samstæðunnar vegna gangvirðisbreytinga innbyggðra afleiða í raforkusamningum hjá Orkuveitu. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 18.021 mkr sem er 2.271 mkr betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir.

Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 1.407 mkr en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði jákvæð um 2.253 mkr á árinu. Niðurstaðan er því 846 mkr lakari en gert var ráð fyrir.  Lakari rekstrarniðurstaða skýrist einkum af hærri gjaldfærslu vegna lífeyrisskuldbindinga en á móti koma hærri skatttekjur, hærri framlög Jöfnunarsjóðs og hærri tekjum af sölu byggingarréttar og söluhagnaði fasteigna.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 2.175 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 2.674 mkr eða 499 mkr undir áætlun.

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í árslok 570.237 mkr, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 306.363 mkr og eigið fé var 263.874 mkr en þar af var hlutdeild meðeigenda 14.469 mkr.  Eiginfjárhlutfall samstæðunnar fer hækkandi og er nú 46,3% en var 45,8% um síðustu áramót.

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, sem heldur utan um rekstur fagsviða, Eignasjóð og Bílastæðasjóð.

Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru:  Orkuveita Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Slökkvilið höfuðborgar­svæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf.

 

Reykjavík, 30. nóvember 2017.

   

Nánari upplýsingar veitir

Birgir Björn Sigurjónsson fjármálastjóri Reykjavíkurborgar sími 693-9321.