Síminn hf. – Betri afkoma milli fjórðunga hjá Símanum

Síminn hf. – Betri afkoma milli fjórðunga hjá Símanum

//
Categories

Helstu niðurstöður í rekstri á öðrum ársfjórðungi 2016

  • Tekjur á öðrum ársfjórðungi 2016 voru 7.475 milljónir króna samanborið við 7.482 milljónir króna á sama tímabili 2015.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA var 1.954 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi 2016 samanborið við 2.062 milljónir króna á sama tímabili 2015. EBITDA hlutfallið var 26,1% fyrir annan ársfjórðung 2016 en var 27,6% á sama tímabili 2015.
  • Hagnaður á öðrum ársfjórðungi 2016 var 716 milljónir króna samanborið við 532 milljónir króna á sama tímabili 2015.
  • Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 1.638 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi 2016 en var 1.691 milljónir króna á sama tímabili 2015. Eftir vexti og skatta var handbært fé frá rekstri 1.492 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi 2016 en 1.432 milljónir króna á sama tímabili 2015.
  • Vaxtaberandi skuldir voru 23,6 milljarður króna í lok annars ársfjórðungs 2016 en voru 24,2 milljarðar í árslok 2015. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 21,1 milljarðar króna í lok annars ársfjórðungs 2016.
  • Hrein fjármagnsgjöld voru 163 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi 2016 en voru 474 milljónir króna á sama tímabili 2015. Fjármagnsgjöld voru 467 milljónir króna, fjármunatekjur voru 300 milljónir króna og gengishagnaður 4 milljónir króna.
  • Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 52,4% í lok annars ársfjórðungs 2016 og eigið fé 32,5 milljarðar króna. 

Orri Hauksson, forstjóri:

„Afkoma Símans breyttist til batnaðar milli ársfjórðunga hjá Símanum, eftir miklar verðlækkanir á farsímamarkaði á fyrsta fjórðungi sem og ófyrirséðar launahækkanir sem fylgdu SALEK-samkomulaginu. Áskrifendur að nærri ársgamalli efnisveitu Símans hafa ekki verið fleiri, ungu fólki fjölgaði í viðskiptum við Símann í gegnum Endalaust fjölskylduáskriftina og reikitekjur hækkuðu svo um munar.

Hátt í 100 þúsund heimili eiga orðið möguleika á 100 Mb/s tengingu eða meira hjá Símanum. Prófanir á 1 Gb/s hraða eru hafnar og Mílu miðar vel áfram í ljósleiðarauppbyggingu sinni. Þá náði 4G kerfi Símans í lok tímabilsins til 93% landsmanna. Með Símanum eru fjarskipti á Íslandi á heimsmælikvarða.

Unnið hefur verið hörðum höndum að hnitmiðaðri rekstri og lægri kostnaði innan samstæðunnar. Samkeppniseftirlitið samþykkti sölu Símans á Talenta og Staka til Deloitte á fjórðungnum. Dótturfélögin On-Waves og danskt dótturfélag Sensa draga afkomu samstæðunnar niður á fyrri helmingi ársins og er rekstur þeirra í endurskoðun. Þá krefst næsta launahækkun SALEK enn frekara aðhalds í rekstri Símans sjálfs.

EM 2016 í Frakklandi setti mark sitt á starfsemina á þessum öðrum ársfjórðungi. Síminn er stoltur af því að hafa sannað sig sem öflugt afþreyingarfyrirtæki í sjónvarpi. Byggt verður á styrkum grunni Símans til framtíðar.“​

Nánari upplýsingar um uppgjörið veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550-6003 ([email protected])

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans s. 550-6003 ([email protected])