Sjóvá-Almennar tryggingar hf. – Árshlutauppgjör
Hagnaður 1.330 m.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins
Tap 472 m.kr. á þriðja ársfjórðungi
- Hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta 499 m.kr.
- Tap af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 946 m.kr.
- Ávöxtun eignasafns félagsins -2,4%
Hermann Björnsson, forstjóri:
„Vátryggingareksturinn heldur áfram að styrkjast frá fyrra ári hvort sem litið er til þriðja ársfjórðungs eða fyrstu níu mánaða ársins. Samsett hlutfall fjórðungsins nemur 94,6%. Neikvæð þróun verðbréfamarkaða á þriðja ársfjórðungi gerði það hins vegar að verkum að 472 m.kr. tap varð á rekstri. Undanfarin ár hefur það verið afkoma fjárfestinga sem hefur borið uppi jákvæða afkomu. Það er því ánægjulegt að vátryggingarekstur skili 884 m.kr. í afkomu fyrir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins sem er tæplega tvöföldun frá sama tíma í fyrra og endar samsett hlutfall í 99,3% á tímabilinu.
Í upphafi árs voru birtar horfur fyrir árið 2017 um að samsett hlutfall verði á bilinu 97-99% og að afkoma fyrir skatta verði umfram 2.500 m.kr. Ekki er talin ástæða til að breyta umræddum horfum en þó vert að benda á þær miklu sveiflur fjárfestingartekna sem orðið hafa á árinu.“ segir Hermann.
Helstu niðurstöður og lykiltölur
3F | 3F | 9M | 9M | |||
2017 | 2016 | % | 2017 | 2016 | % | |
Vátryggingastarfsemi | ||||||
Iðgjöld tímabilsins | 4.294 | 4.073 | 5,4% | 12.172 | 11.348 | 5,4% |
Hluti endurtryggjenda í iðgjaldatekjum | -236 | -312 | -24,2% | -630 | -701 | -24,2% |
Eigin iðgjöld | 4.058 | 3.761 | 7,9% | 11.542 | 10.647 | 7,9% |
Fjárfestingartekjur af vátryggingarekstri | 266 | 191 | 38,8% | 802 | 595 | 38,8% |
Aðrar tekjur | 8 | 91 | -91,1% | 28 | 106 | -91,1% |
Heildartekjur af vátryggingarekstri | 4.332 | 4.044 | 7,1% | 12.372 | 11.348 | 7,1% |
Tjón tímabilsins | -3.028 | -2.836 | 6,8% | -8.984 | -8.252 | 6,8% |
Hluti endurtryggjenda í tjónum tímabilsins | 15 | -7 | -321,4% | 179 | -10 | -321,4% |
Eigin tjón | -3.013 | -2.843 | 6,0% | -8.805 | -8.262 | 6,0% |
Rekstrarkostnaður af vátryggingarekstri | -819 | -808 | 1,4% | -2.683 | -2.614 | 1,4% |
Heildargjöld af vátryggingarekstri | -3.832 | -3.651 | 5,0% | -11.488 | -10.876 | 5,0% |
Hagnaður/tap af vátryggingarekstri | 499 | 394 | 26,8% | 884 | 471 | 26,8% |
Fjárfestingarstarfsemi | ||||||
Fjárfestingartekjur af fjárfestingarstarfsemi | -885 | 598 | -248,0% | 813 | 1.481 | -248,0% |
Rekstrarkostnaður af fjárfestingarstarfsemi | -62 | -60 | 3,2% | -196 | -166 | 3,2% |
Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi | -946 | 538 | -275,9% | 617 | 1.315 | -275,9% |
Hagnaður fyrir tekjuskatt | -447 | 932 | -148,0% | 1.501 | 1.787 | -148,0% |
Tekjuskattur | -25 | -74 | -66,0% | -171 | -219 | -66,0% |
Heildarhagnaður tímabilsins | -472 | 858 | -155,0% | 1.330 | 1.568 | -155,0% |
3F | 3F | 9M | 9M | ||
2017 | 2016 | 2017 | 2016 | ||
Tjónahlutfall | 70,5% | 69,6% | 73,8% | 72,7% | |
Endurtryggingahlutfall | 5,0% | 5,6% | 3,5% | 5,3% | |
Kostnaðarhlutfall | 19,1% | 19,8% | 22,0% | 23,0% | |
Samsett hlutfall | 94,6% | 95,0% | 99,3% | 101,1% | |
Ávöxtun eigin fjár | -12,7% | 20,7% | 11,0% | 12,6% | |
Hagnaður á hlut | -0,34 | 0,56 | 0,95 | 1,02 | |
Eigið fé | 14.899 | 16.900 | 14.899 | 16.900 | |
Gjaldþolshlutfall SII | 1,48 | 1,95 | 1,48 | 1,95 |
Kynningarfundur 2. nóvember kl. 16:15
Sjóvá býður til opins kynningarfundar um afkomu félagsins á þriðja ársfjórðungi 2017, fimmtudaginn 2. nóvember kl. 16:15 í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð. Hermann Björnsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá fundinum á vefslóðinni www.sjova.is/afkomukynningar
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, í síma 440-2000 eða [email protected].