Uppgjör HB Granda hf. á öðrum ársfjórðungi 2016

Uppgjör HB Granda hf. á öðrum ársfjórðungi 2016

//
Categories

 

  • Rekstrartekjur samstæðunnar á öðrum árfjórðungi voru 51,3 m€ og 95,2 m€ á fyrri árshelmingi (2F 2015: 57,1 m€, 1H 2015: 110,4 m€)
  • EBITDA nam 8,6 m€ á öðrum ársfjórðungi og 21,0 m€ á fyrri árshelmingi (2F 2015: 9,9 m€, 1H 2015: 31,3 m€)
  • Hagnaður á öðrum ársfjórðungi var 6,9 m€ og á fyrri árshelmingi 12,5 m€ (2F 2015: 8,2 m€, 1H 2015: 22,0 m€)
  • Handbært fé frá rekstri nam 7,1 m€ á fyrri árshelmingi (1H 2015: 18,2 m€)

Rekstur fyrstu sex mánaða ársins 2016

Rekstrartekjur HB Granda hf. á fyrri helmingi ársins 2016 námu 95,2 m€, samanborið við 110,4 m€ árið áður.  Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 21,0 m€ eða 22,0% af rekstrartekjum, en var 31,3 m€ eða 28,3% árið áður.  Áhrif fjáreignatekna og fjármagnsgjalda voru neikvæð um 0,7 m€, en voru neikvæð um 0,02 m€ á sama tíma árið áður.  Áhrif hlutdeildarfélags voru jákvæð um 1,8 m€, en voru neikvæð um 3,0 m€ árið áður.  Hagnaður fyrir tekjuskatt var 14,6 m€ og hagnaður tímabilsins var 12,5 m€.  

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 411,1 m€ í lok júní 2016. Þar af voru fastafjármunir 325,7 m€ og veltufjármunir 85,4 m€.  Eigið fé nam 235,6 m€, eiginfjárhlutfall í lok júní var 57,3%, en var 62,2% í lok árs 2015. Heildarskuldir félagsins voru í júnílok 175,5 m€.

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri nam 7,1 m€ á tímabilinu, en nam 18,2 m€ á sama tíma fyrra árs.  Nettó fjárfesting í rekstrarfjármunum nam 6,9 m€.  Fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar um 0,3 m€.  Handbært fé lækkaði því um 0,02 m€ á tímabilinu og var í lok júní 11,2 m€.

Meginniðurstöður færðar til íslenskra króna

Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi fyrri árshelming 2016 (1 evra = 141,18 kr) verða tekjur 13,4 milljarðar króna, EBITDA 3,0 milljarður og hagnaður 1,8 milljarðar.  Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á gengi 30. júní 2016 (1 evra = 136,37 kr) verða eignir samtals 56,0 milljarðar króna, skuldir 23,9 milljarðar og eigið fé 32,1 milljarðar.

Skipastóll og afli

Skipafloti félagsins var óbreyttur frá áramótum.

Á fyrri árshelmingi ársins 2016 var afli skipa félagsins 25 þúsund tonn af botnfiski og 51 þúsund tonn af uppsjávarfiski.

Kynningarfundur þann 1. september 2016

Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins á öðrum ársfjórðungi verður haldinn fimmtudaginn 1. september klukkan 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Norðurgarði 1. Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum.