Árshlutauppgjör Landsbréfa 30. júní 2016

Árshlutauppgjör Landsbréfa 30. júní 2016

//
Categories

Hagnaður af rekstri Landsbréfa nam 291 milljón króna á fyrri hluta ársins 2016, en árshlutareikningur félagsins var birtur í dag.

Hreinar rekstrartekjur námu 828 milljónum króna á fyrri hluta ársins 2016, en námu 763 milljónum króna á sama tímabili á árinu 2015.  Hagnaður af rekstri nam 291 milljón króna á fyrri hluta ársins, samanborið við 285 milljón króna hagnað á sama tíma á síðasta ári. Eigið fé Landsbréfa í lok tímabilsins nam 2.738 milljónum króna og eiginfjárhlutfall, reiknað samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 99,46% en þetta hlutfall má ekki vera undir 8%. Í lok júní áttu um 13 þúsund einstaklingar og lögaðilar fjármuni í sjóðum í stýringu Landsbréfa og voru eignir í stýringu þá um 152 milljarðar króna samanborið við 129 milljarða í upphafi árs.

Umsvif félagsins tengd sérhæfðum fjárfestingum voru sem fyrr umtalsverð, en á tímabilinu var lokið við fjármögnun tveggja samlagshlutafélaga. Annars vegar er það Horn III slhf., sem er 12 milljarðar króna að stærð og starfar á sviði framtaksfjárfestinga og hins vegar Landsbréf – Veðskuldabréfasjóður slhf. sem er 8,7 milljarðar króna að stærð og mun fjárfesta í skuldabréfum með fasteignaveði. Félagið rekur einnig aðra framtakssjóði á samlagshlutafélagaformi. Þetta eru Horn II slhf., sem fjárfestir í öllum geirum íslensks atvinnulífs, Landsbréf Icelandic Tourism Fund I slhf., sem sérhæfir sig í fjárfestingum í afþreyingartengdri ferðaþjónustu og loks Brunnur vaxtarsjóður slhf. sem fjárfestir í nýsköpun.

 

Landsbréf hf. reka fjölda skuldabréfasjóða og var ávöxtun þeirra almennt ágæt á tímabilinu miðað við markaðsaðstæður. Heildarstærð skuldabréfasjóða í stýringu hjá Landsbréfum var 70,9 milljarðar í lok júní.

Ávöxtun hlutabréfasjóða á fyrri árshelmingi 2016 endurspeglaði erfiðar markaðsaðstæður á innlendum og erlendum hlutabréfamörkuðum. Hlutabréfasjóðir í rekstri Landsbréfa voru í lok júní 2016 um 28,5 milljarðar króna að stærð.

 

Landsbréf hlutu á árinu endurnýjun á viðurkenningu sem „Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum“ sem veitt er af Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands. Félagið leggur mikla áherslu á vandaða stjórnarhætti og leitast stöðugt við að vera til fyrirmyndar í þessum efnum.

Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa segir:

„Rekstur Landsbréfa hefur gengið mjög vel það sem af er ári og hafa sjóðir félagsins almennt skilað góðum árangri miðað við markaðsaðstæður. Sjóðaframboð Landsbréfa er fjölbreytt og er þar að finna sjóði sem henta flestum fjárfestum. Útlitið í efnahagsmálum á Íslandi er gott, en óvissa á erlendum mörkuðum hefur áhrif hér á landi.  Allar forsendur eru þó til að búast við góðri ávöxtun á komandi misserum. Landsbréf munu halda áfram að leggja metnað sinn í að stýra þeim fjármunum sem félaginu er treyst fyrir á öruggan og markvissan hátt í þágu sjóðfélaga.“

Frekari upplýsingar veitir Helgi Þór Arason framkvæmdastjóri Landsbréfa í síma 410 2500.