Fjarskipti hf. : Flutningur höfuðstöðva og samkeppni á farsímamarkaði hafa áhrif á rekstrarniðurstöðu

Fjarskipti hf. : Flutningur höfuðstöðva og samkeppni á farsímamarkaði hafa áhrif á rekstrarniðurstöðu

//
Categories

Árshlutareikningur Fjarskipta hf. fyrir þriðja ársfjórðung 2016 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 26. október 2016.

  • Tekjur námu 3.443 m.kr. og standa í stað m.v. þriðja ársfjórðung 2015
  • Framlegð 1.657 m.kr., lækkun um 5% miðað við sama tímabil 2015
  • EBITDA hagnaður nam 927 m. kr., lækkun um 10% milli ára
  • EBITDA hlutfall 26,9% og EBIT hlutfall 16,8% á fjórðungnum
  • Hagnaður tímabilsins nam 391 m.kr. sem er 22% lækkun frá þriðja ársfjórðungi 2015
  • Eiginfjárhlutfall nam 45,1%
  • EBITDA horfur fyrir árið færðar niður og eru nú áætlaðar í kringum 3,1 milljarður fyrir árið 2016

Stefán Sigurðsson, forstjóri:

“Rekstur Fjarskipta hf. á þriðja fjórðungi varð fyrir áhrifum af flutningum félagsins, samkeppni og verðlækkunum á farsímamarkaði á fyrri hluta ársins. Einskiptiskostnaður vegna húsnæðismála nam 50 milljónum króna, einkum í tengslum við flutninga og skil á eldri höfuðstöðvum í Skútuvogi en einnig undirbúning nýrra höfuðstöðva við Suðurlandsbraut. Lækkun í framlegð á fjórðungnum kemur einnig að nokkrum hluta til vegna einskiptisliða við kaup á efni til styrkingar sjónvarpsþjónustu félagsins og gefur því ekki góða mynd af framtíðarþróun félagsins. Meðaltekjur af viðskiptavinum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum, lækkuðu og höfðu áhrif á tekjuvöxt á fjórðungnum þrátt fyrir góða fjölgun viðskiptavina það sem af er árs. Áhrif hagræðingaraðgerða sem hófust á fyrsta ársfjórðungi héldu áfram að skila árangri. Aukning launakostnaðar félagsins á fjórðungnum á milli ára er t.a.m. innan við helmingur af hækkun launavísitölu á ársgrundvelli.

Ofangreint og fyrirsjáanlegur einskiptiskostnaður vegna skoðunar félagsins á mögulegum kaupum á ljósvaka- og fjarskiptahluta 365 gerir að verkum að félagið lækkar nú EBITDA horfur þannig að þær verða nú í kringum 3,1 milljarður fyrir árið.

Áhrif kjarasamningshækkana, lækkunar verðs á farsímamarkaði á Íslandi og Færeyjum og húsnæðismála eru metin yfir 400 milljónir króna á fyrstu níu mánaðum ársins sem höfðu á endanum áhrif á EBITDA horfur ársins.

Þrátt fyrir lækkun EBITDA horfa er útlit fyrir að ýmis verkefni sem fyrirtækið hefur unnið að muni hafa jákvæð áhrif á árinu 2017. Lægri starfsmannakostnaður mun hafa jákvæð áhrif á næsta ári, húsnæðiskostnaður félagsins mun dragast saman frá byrjun árs og hagræðing í tengslum við Sendafélagið mun hafa aukin áhrif þegar líður á árið. Horfur félagsins fyrir árið 2017 verða kynntar í heild sinni þegar þær liggja fyrir. 

Félagið vinnur enn að áreiðanleikakönnun á ljósvakamiðlum og fjarskiptastarfsemi 365. Gert er ráð fyrir niðurstöðu í þeim viðræðum á fjórðungnum.”