HS Orka hf. birtir árshlutareikning fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2016

HS Orka hf. birtir árshlutareikning fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2016

//
Categories

Stjórn HS Orku hf. samþykkti á fundi sínum í dag árshlutareikning fyrirtækisins fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2016. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS og er í íslenskum krónum. Árshlutareikninginn má finna á vefsíðu fyrirtækisins http://www.hsorka.is

Helstu atriði árshlutareikningsins eru þessi:

Hagnaður tímabilsins nam 2.714 milljónum en á sama tímabili 2015 var hagnaður af rekstri 290 milljónir. Rekstartekjur námu 5.119 milljónum ( Níu mánuðir 2015: 5.382 milljónir) Helsta skýring á lækkun rekstrartekna er minni framleiðsla og minni sala rafmagns til fiskimjölsverksmiðja vegna lakrar loðnuvertíðar.

Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 2.135 m.kr. en voru neikvæðir um 2.017 m.kr. á sama tímabili  árið 2015. Hækkun á virði afleiða (framtíðarvirði orkusölusamninga sem tengjast álverði) er meginorsök breytingarinnar, en þeir voru jákvæðir um 1.653 m.kr. á fyrstu níu mánuðum 2016 en voru neikvæðir um 2.156 m.kr. á sama tímabili 2015. Áhrif gengisbreytinga voru jákvæð um 597 m.kr. en voru jákvæð um 206 m.kr. á sama tímabili 2015.

Borun íslenska djúpborunarverkefnisins á Reykjanesi hefur nú náð niður á meira en 3.850 metra dýpi og er borholan orðin sú dýpsta á Íslandi. Markmiðið er að komast niður á 5 kílómetra dýpi í framhaldinu. Áætlaður hiti á botni holunnar í dag er um 400 gráður. Vonir standa til að finna gufusvæði með yfirhitaðri gufu sem er mun orkumeiri en hefðbundin gufa notuð til orkuvinnslu.

Heildarhagnaður nam 2.501 milljónum á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 samanborið við hagnað upp á 172 milljónir á sama tímabili 2015.

Eiginfjárhlutfall 30. september 2016 er áfram mjög hátt eða 65,7% en var í árslok 2015 58,6%.

Frekari upplýsingar veitir Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku hf. í síma 855 9301.